Haustönn 2010

Þessa dagana er stjórn Stúdentaleikhússins í óðaönn við að undirbúa komandi leikár, ásamt leikstjórum.

Um miðjan september verður fyrsti fundur haldinn og námskeið hefst strax að honum loknum. Upplýsingar varðandi fund og námskeið munu birtast á síðunni okkar á næstu dögum.

Eins leitum við að duglegum einstaklingum til að vinna að styrkjasöfnun með okkur. Það er einstaklega mikilvægt verkefni þetta árið og verður þeim sem taka þátt umbunað :) Áhugasamir mega gjarnan senda póst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Munið svo eftir okkur á feisbókinni og fylgist með :)

Hlökkum til að sjá ykkur.

Stjórn

 
Hjartsláttur - Stúdentaleikhúsið 80 ára
Hjarta Stúdentaleikhússins slær í brjósti hvers þess áhugaleikara, leikara, og listamanns sem tekið hefur þátt í að efla það með áhuga og frjálsri hugsjón síðustu 80 ár.
Hjarta Stúdentaleikhússins slær enn í gömlum kempum og kveikir líf í áhugasömum listamönnum.
Hópurinn samsanstendur af fólki sem unnið hefur í Stúdentaleikhúsinu sem listafólk og stjórnarmeðlimir. Þeir hafa metnað fyrir því að skapa farveg fyrir áframhaldandi starf og efla reynda sem ólærða leikara og listamenn með því að blanda þeim saman, skapa umræður, efla listina og auka sýnileika. Stúdentaleikhúsið setur sýningar á stokk sem eru ögrandi og fara ótroðnar slóðir með nýjar hugmyndir. Hópurinn vill tileinka haustinu 2009 sögu Stúdentaleikhússin í tilefni þess að leikhúsið er 80 ára.
Leikhúsið sýnir tvær sýningar á ári, haust og vor. Síðustu 10 árin hefur það verið starfrækt án hléa en á undan því þá hafði leikhúsið legið í dvala um tíma en það er eitthvað sem hópurinn vill spyrna gegn að komi fyrir aftur. Hópurinn vill því efla Stúdentaleikhúsið en jafnframt halda í frelsið sem leikhúsið er þekkt fyrir.

Hjarta Stúdentaleikhússins slær í brjósti hvers þess áhugaleikara, leikara, og listamanns sem tekið hefur þátt í að efla það með áhuga og frjálsri hugsjón síðustu 80 ár.

Hjarta Stúdentaleikhússins slær enn í gömlum kempum og kveikir líf í áhugasömum listamönnum.

Nánar...
 

To be or not to be; that is the question.

William Shakespeare
Panta miða

Hér getur þú pantað miða á sýningar okkar.
Smelltu hér.
Þjóðleikhúsið, er það ekki þarna rétt hjá Kringlunni?